Eyjólfur Héðinsson einnig í hópnum
Lars Lagerbäck landsliðsþjálfari hefur tilkynnt hópinn sem leikur tvo vináttulandsleiki síðar í mánuðinum. Leikið verður gegn Frökkum sunnudaginn 27. maí og gegn Svíum miðvikudaginn 30. maí.
Alls eru 25 leikmenn valdir í hópinn og þar af eru tveir nýliðar, Hólmar Örn Eyjólfsson úr Bochum og markvörðurinn Ögmundur Kristinsson úr Fram.
Þá vekur athygli að Eyjólfur Héðinsson er valinn í hópinn en hann hefur sýnt flotta frammistöðu með SönderjyskE í Danmörku.
Leikurinn við Frakka fer fram á á Stade du Hainaut í Valenciennes en leikurinn við Svía fer fram í Gautaborg, nánar tiltekið á Gamla Ullevi. Frakkar og Svíar eru hlið við hlið á nýjasta styrkleikalista FIFA, Frakkar í 16. sæti og Svíar í 17. sæti.
Íslendingar og Frakkar hafa mæst 10 sinnum áður hjá A landsliðum karla. Frakkar hafa farið með sigur sjö sinnum og þrisvar hafa leikar endað með jafntefli. Leikirnir við Svía hafa hinsvegar verið 14 talsins. Ísland hefur tvisvar farið með sigur af hólmi, tvisvar hefur verið jafntefli og Svíar hafa sigrað tíu sinnum.
Markmenn:
Gunnleifur Gunnleifsson - FH
Hannes Þór Halldórsson - KR
Ögmundur Kristinsson * - Fram
Stefán Logi Magnússon ** - Lilleström
Varnarmenn:
Hjálmar Jónsson - Gautaborg
Ragnar Sigurðsson - FC Kaupmannahöfn
Sölvi Geir Ottesen Jónsson - FC Kaupmannahöfn
Hjörtur Logi Valgarðsson - Gautaborg
Hallgrímur Jónasson - SönderjyskE
Hólmar Örn Eyjólfsson - Bochum
Birkir Már Sævarsson ** - Brann
Bjarni Ólafur Eiríksson ** - Stabæk
Miðjumenn:
Aron Einar Gunnarsson - Cardiff
Helgi Valur Daníelsson - AIK
Kári Árnason - Aberdeen
Jóhann Berg Guðmundsson - AZ Alkmaar
Rúrik Gíslason - OB
Eggert Gunnþór Jónsson - Wolves
Ari Freyr Skúlason - Sundsvall
Sóknarmenn:
Birkir Bjarnason - Standard Liege
Kolbeinn Sigþórsson - Ajax
Alfreð Finnbogason - Helsingborg
Gylfi Þór Sigurðsson - Swansea
Eyjólfur Héðinsson - SönderjyskE
Björn Bergmann Sigurðarson** - Lilleström
* Er í hópunum gegn Frakklandi
** Er í hópnum gegn Svíþjóð



