Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
banner
   mið 16. maí 2012 06:00
Magnús Már Einarsson
Skráning í fótboltaskóla Bolton og KF
Mynd: KF
Knattspyrnufélag Fjallabyggðar og Knattspyrnuskóli Grétars Rafns Steinssonar eru komin í samstarf með fótboltaskólann sem verður haldinn í fimmta sinn nú í sumar á Siglufirði. Skráning er hafin á [email protected]

Skólinn hefst mánudaginn 11. júní og lýkur föstudaginn 15. júní. Líkt og undanfarin ár verða þjálfarar frá knattspyrnuakademíunni hjá Bolton Wanderes.

Þátttökualdur í skólann hafa þeir sem fæddir eru á árinu 1994 til 2003.

Líkt og undanfarin ár verður lögð áhersla á fjölbreyttar æfingar, hollt mataræði, hvað hægt er að gera til að verða atvinnumaður í knattspyrnu og hvað þarf til. Gisting verður að Hóli fyrir þá sem það vilja meðan húsrúm leyfir. Reynt verður að ná hagstæðum samningum við veitingarhús bæjarins vegna kvöldmatar og morgunmatur á Hóli verður á kostnaðarverði.

Að sjálfsögðu verður gæsla allan tímann á Hóli. Námskeiðisgjald er 20.000 kr. og innifalið í því verður Knattspyrnuskólinn, hollur hádegismatur, fræðsla í næringarfræði, vallarnesti,frítt í sund og frábærir dagar í Siglufirði.

Skráningu lýkur föstudaginn 18 maí.
Slapp