Afturelding hefur fengið Grétar Örn Ómarsson til liðs við sig fyrir baráttuna í 2. deildinni en Mosfellingar stefna á að komast upp í sumar.
Grétar er sóknarsinnaður og fjölhæfur leikmaður leikmaður á 26. aldursári.
Grétar er sóknarsinnaður og fjölhæfur leikmaður leikmaður á 26. aldursári.
Hann á fjölmarga leiki að baki fyrir Fjarðabyggð í 1., 2. og 3. deild en hann lék sextán leiki þegar liðið féll úr 2. deildinni sumarið 2010.
Í fyrrasumar var hann í fríi frá fótbolta að mestu leyti en lék þó tvo leiki með Ými í 3. deildinni.
Á dögunum fékk liðið einnig Þorgeir Leó Gunnarsson lánaðan frá Leikni í Breiðholti. Þorgeir leikur sem vinstri bakvörður en getur einnig spilað á kanti. Hann hefur einnig látið til sín taka í rappheiminum en heyra má hljóðdæmi með því að smella hér.
Arnór Þrastarson og Andri Hrafn Sigurðsson hafa einnig gert áframhaldandi samning við Aftureldingu en þeir voru fastamenn í liðinu í fyrra.




