Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
Besta Álitið: Hvaða lið getur veitt Víkingum keppni?
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
   þri 15. maí 2012 23:03
Brynjar Ingi Erluson
Logi Ólafs: FH-ingar eru fljótir að refsa
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
,,Ég er afskaplega vonsvikinn með það að hafa leyft þeim að opna svona. Við vissum það að smá mistök í sendingum okkar þá eru FH-ingar fljótir að refsa," sagði Logi Ólafsson, þjálfari Selfyssinga eftir tap liðsins gegn FH í kvöld.

Lestu um leikinn: Selfoss 0 -  1 FH

FH vann Selfoss með einu marki gegn engu í kvöld er liðin léku í Pepsi-deildinni í kvöld, en Björn Daníel Sverrisson skoraði eina mark leiksins á 79. mínútu leiksins.

,,Þeir nota fáar snertingar á boltann og eru vel spilandi. Vel samhæft spil og eru búnir að spila saman lengi og þannig að við vissum að það þetta væri eitur í okkar beinum að gera svona mistök eins og við gerðum þarna."

,,Hinsvegar erum við að fá ágætis færi til þess að jafna leikinn. Mér fannst ákefðin sem við settum í gang eftir markið, ég hefði vilja sjá hana fyrr, það var kannski smá svona hræðsla í okkar mönnum."

,,Ég held að það þarf töluvert til að halda aftur af FH-ingum í sóknarleik þeirra. Þeir halda boltanum gríðarlega vel og það sem við lögðum upp með var að leyfa þeim að hafa boltann þarna aftast og svo komum við og náðum af þeim boltanum í nokkur skipti og gátum búið til miklu meira og betra úr þeim hröðu upphlaupum sem við áttum kost á,"
sagði Logi.

Babacar Sarr skoraði fyrir Selfyssinga á 24. mínútu leiksins eftir hornspyrnu, en hann var dæmdur brotlegur og þá gerði liðið einnig tilkall til vítaspyrnu í leiknum.

,,Ég treysti mér nú ekki til þess að dæma um það. Ég held að skýringin í seinna tilvikinu að atgangurinn hafi byrjað fyrir utan línuna og því ber að dæma á það þar sem atvikið byrjaði en ekki þar sem það endaði, en hitt bara sá ég ekki."

Þá staðfesti Logi við Fótbolta.net að framherjinn Moustapha Cisse sé kominn með leikheimild hjá liðinu, en hann á einn leik að baki með landsliði Senegal.

,,Hann er kominn með leikheimild núna. Hann fékk hana í dag, en við getum ekki nýtt hann, þar sem það verður að vera einn sólarhringur liðinn," sagði Logi að lokum.

Hægt er að sjá allt viðtalið í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner
banner
banner