Kristinn Jónsson var að vonum ánægður með sigur sinna manna gegn Val í kvöld en Kristinn var besti maður Blika í kvöld.
Lestu um leikinn: Breiðablik 1 - 0 Valur
"Ég er gífurlega ánægður með þetta og að ná að halda hreinu og klára þetta, við vorum þéttir til baka og nýttum okkar færi vel. Við höfum lagt mikla áherslu á varnarleikinn í vetur og erum bara þéttari fyrir en erum ekki að sækja á mörgum mönnum og sitjum aðeins til baka og reynum að nýta hraðaupphlaupin".
Blikar hafa einungis skorað eitt mark í fyrstu þrem leikjunum en það er ekkert sem Kristinn hefur áhyggjur af.
"Ég mundi ekki segja að það sé áhyggjuefni við höfum verið að skapa okkur ágætis færi en það vantar kannski aðeins uppá sendingarnar á síðasta þriðjungnum því við erum að koma okkur í ágætis stöðu "
Kristinn sagðist vera bjartsýnn á framhaldið enda liðið búið að halda hreinu í tveim af þremur leikjum en liðið hélt aldrei hreinu á seinasta ári.
Viðtalið við Kristinn má sjá á sjónvarpinu hér að ofan.
























