Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   þri 15. maí 2012 23:24
Elvar Geir Magnússon
Ferdinand ekki á EM - Kyle Walker meiddur
Roy Hodgson, þjálfari enska landsliðsins, mun ekki velja Rio Ferdinand hjá Manchester United í hóp sinn fyrir Evrópumótið. 23 manna hópur verður tilkynntur á morgun.

John Terry, varnarmaður Chelsea, verður valinn en Ferdinand skilinn eftir samkvæmt enskum fjölmiðlum.

Anton Ferdinand, bróðir Rio, sakar Terry um kynþáttaníð í sinn garð og telur Hodgson að ekki sé hægt að velja bæði Rio og Terry í hópinn.

Rio Ferdinand hefur aldrei leikið í lokakeppni Evrópumóts.

Þá er ljóst að meiðsli í tá gera það að verkum að bakvörðurinn Kyle Walker getur ekki tekið þátt í EM. Þessi 21 árs leikmaður Tottenham lék sína fyrstu landsleiki í fyrra.
Slapp