ÍR hefur fengið Viggó Kristjánsson til liðs við sig á láni frá Breiðabliki en félagaskiptin gengu í gegn áður en félagaskiptaglugginn lokaði í gær.
Viggó getur leikið allar stöður framarlega á vellinum en hann kom til Blika frá Gróttu í vetur.
Viggó, sem er 18 ára, lék sinn fyrsta meistaraflokksleik með Gróttu þegar hann var 15 ára.
Viggó getur leikið allar stöður framarlega á vellinum en hann kom til Blika frá Gróttu í vetur.
Viggó, sem er 18 ára, lék sinn fyrsta meistaraflokksleik með Gróttu þegar hann var 15 ára.
ÍR mætir Njarðvík á útivelli í bikarkeppninni í kvöld og Viggó gæti leikið sinn fyrsta leik með Breiðhyltingum þar.



