Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   mið 16. maí 2012 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Fortuna Dusseldorf í efstu deild - Hertha féll
Fortuna Dusseldorf 2 - 2 Hertha Berlin (Samanlagt 4 - 3)
1-0 M. Heister ('1 )
1-1 A. Ben-Hatira ('23 )
2-1 R. Jovanovic ('59 )
2-2 Raffael ('85 )
Rautt spjald: A. Ben-Hatira ('55, Hertha Berlin)

Fortuna Dusseldorf komst í gær upp í efstu deild í Þýskalandi eftir að hafa unnið Herthu Berlin samanlagt 4-3 í umspili um sæti í deildinni.

Maximillian Heister kom Fortuna yfir eftir einungis eina mínútu, en hann lét þá vaða af tuttugu metra færi, en fyrri leikurinn fór 2-1 fyrir Fortuna á heimavelli Herthu Berlin og því róðurinn þungur fyrir gestina í dag.

Anis Ben-Hatira jafnaði metin fyrir Berlínarmenn á 23. mínútu leiksins eftir sendingu frá Ronny, en hann fékk mörg góð tækifæri fyrir lok fyrri hálfleiks til þess að skora fleiri mörk en brást bogalistin.

Hann fékk svo að gjalda fyrir það á 55. mínútu í síðari hálfleik er hann fékk að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt. Ranisav Jovanovic skoraði þá fjórum mínútum síðar fyrir Fortuna og kom þeim 2-1.

Raffael jafnaði metin fimm mínútum fyrir leikslok, en það reynist ekki nóg og samanlagður sigur Fortuna því staðreynd. Fortuna Dusseldorf leikur því í efstu deild á næsta tímabili, en Hertha Berlin leikur í fyrstu deildinni.
Slapp
banner