Barack Obama, Bandaríkjaforseti, fékk bandaríska knattspyrnufélagið Los Angeles Galaxy í heimsókn til sín í Hvíta Húsið til að óska því til hamingju með MLS titilinn fyrir 2011 tímabilið.
Obama gerði létt grín að David Beckham, leikmanni LA Galaxy, þegar hann hélt ræðu til að óska liðinu til hamingju með titilinn.
Obama gerði létt grín að David Beckham, leikmanni LA Galaxy, þegar hann hélt ræðu til að óska liðinu til hamingju með titilinn.
,,Það er ein ung framtíðarvon í liðinu, náungi að nafni David Beckham," sagði Obama í stríðni.
,,Ég stríddi Beckham. Ég sagði að helmingurinn af leikmönnum liðsins gætu verið synir hans.
,,Hann er harður maður. Það er sjaldgæft að einn maður geti verið svona harður á vellinum og setið fyrir nærfatalínu á sama tíma. David Beckham er sá maður.
,,Í fyrra, þegar hann var 36 ára, átti David sitt besta ár í MLS deildinni. Hann átti 15 stoðsendingar og var stórkostlegur þrátt fyrir að vera með áverka í hryggnum og nárameiðsli meirihluta tímabilsins," hélt Obama áfram.
,,Landon er líka frábær. Sigurviljinn hans er goðsagnakenndur."




