Á eftir mun Roy Hodgson, landsliðsþjálfari Englands, tilkynna 23 manna hóp sinn sem fer á Evrópumót landsliða sem haldið verður í Póllandi og Úkraínu,
Enskir fjölmiðlar hafa legið í rannsóknarvinnu og meðal annars komist að því að Andy Carroll, sóknarmaður Liverpool, er í hópnum en Peter Crouch hjá Stoke þarf að sætta sig við að vera heima.
Enskir fjölmiðlar hafa legið í rannsóknarvinnu og meðal annars komist að því að Andy Carroll, sóknarmaður Liverpool, er í hópnum en Peter Crouch hjá Stoke þarf að sætta sig við að vera heima.
Þá er ekki pláss fyrir varnarmanninn Micah Richards hjá Manchester City samkvæmt heimildum Guardian.
John Terry fer á mótið en ekki Rio Ferdinand eins og við greindum frá í gær og Kyle Walker gefur ekki kost á sér vegna meiðsla.





