Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   mið 16. maí 2012 09:57
Hafliði Breiðfjörð
KR fékk leikheimild fyrir tvo erlenda leikmenn í kvennaliðið
Kvenaboltinn
Kvennalið KR hefur fengið liðsstyrk.
Kvennalið KR hefur fengið liðsstyrk.
Mynd: Fótbolti.net - Gunnar Már Hauksson
Kvennalið KR fékk leikheimild fyrir tvo erlenda leikmenn áður en félagaskiptaglugginn lokaði á miðnætti.

Þetta eru bandarísku stúlkurnar Liz Carroll og Katelyn Ruhe. Til stóð upphaflega að þær myndu spila leikinn gegn Selfossi í Pepsi-deildinni á sunnudaginn og þær komu til landsins sama dag en leikheimildin náðist ekki í gegn fyrr en í gær.

Leikmennirnir koma báðar frá Pittsburgh Panthers í Bandaríkjunum. Ruhe er miðjumaður og Carroll átti að spila í framlínu KR en getur einnig spilað á miðjunni.

Miklar breytingar urðu á liði KR á milli ára. Þeir leikmenn sem fóru voru Alexandra Sveinsdóttir í Hött, Arna Ómarsdóttir í Breiðablik (úr láni), erglind Bjarnadóttir í HK/Víking, Dagmar Mýrdal Gunnarsdóttir í Stjörnuna, Guðrún Ólöf Olsen í Fram, Íris Dögg Gunnarsdóttir í Fylki, Katrín Ásbjörnsdóttir í Þór/KA, Lára Hafliðadóttir í HK/Víking, Petra Lind Sigurðardóttir í Fjarðabyggð/Leikni, Sonja Björk Jóhannsdóttir í barneignarfrí, Margrét Þórólfsdóttir er hætt og erlendu leikmennirnir Elisa Berzinz, Kathleen Smith, Keli M Mclaughlin og Rosie Malone-Povolny eru allir farnir frá félaginu.

Í stað þeirra komu Alma Rut Garðarsdóttir úr Grindavík, Anna Garðarsdóttir úr Aftureldingu, Emma Higgins úr Grindavík, Olga Hansen frá Álftanesi, Sigrún Inga Ólafsdóttir frá Breiðablik og þær bandarísku.
Slapp
banner
banner