Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   mið 16. maí 2012 10:08
Elvar Geir Magnússon
Robert Pires: Hver er Grant Holt?
Á eftir verður landsliðshópur Englands valinn fyrir Evrópumótið í Póllandi og Úkraínu.

Margir eru á því að Grant Holt, sóknarmaður Norwich, eigi skilið sæti í hópnum eftir mörkin fimmtán sem hann hefur skorað í ensku úrvalsdeildinni í vetur.

Robert Pires, fyrrum leikmaður Arsenal, var spurður að því hvort hann myndi velja Holt ef hann væri landsliðsþjálfari.

„Hvern?" var svarið frá Pires sem aldrei hefur heyrt um Holt.

Í sama viðtali sagði Pires frá því að hann hefði keypt íbúð sem staðsett er þar sem gamli góði Highbury völlurinn var í London. „Ég keypti þessa íbúð bara vegna minningana. Ég fór þangað einn daginn og grét. Það var furðulegt tilfinning. Ég er ekki hrifinn af þessum breytingum," sagði Pires.
Slapp
banner
banner