Heimild: BBC
Þá er komið að helstu slúðurmolunum úr enska boltanum á þessum fína miðvikudegi.
Umboðsmaður Yaya Toure segir að leikmaðurinn muni mögulega yfirgefa félagið í sumar. (Daily Mail)
Robin van Persie, framherij Arsenal, gæti klárað síðasta árið af samningi sínum ef hann hafnar nýjum samningi hjá félaginu. (The Sun)
Barcelona er að íhuga að fá Didier Drogba frítt frá Chelsea. (The Sun)
Brendan Rodgers, stjóri Swansea, ætlar að bjóða tvær milljónir punda í Simon Cox framherja WBA og 400 þúsund pund í framherjann Bedi Buval hjá Feirense í Portúgal. (Daily Mirror)
Manchester United, Arsenal og Newcastle eru öll á eftir Mapou Yanga-Mbiwa leikmanni Montpellier. (Talksport)
Martin O'Neill, stjóri Sunderland, er á eftir Steven Fletcher framherja Wolves og Ryan Bertrand varnarmanni Chelsea. (Daily Mail)
Arsenal, Tottenham og QPR hafa áhuga á Alessandro Del Piero framhera Juventus en hann hefur áhuga á að fara til Englands. (Talksport)
Luka Modric gæti yfirgefið Tottenham eftir EM í sumar en Manchester City og Manchester United hafa áhuga. (Daily Mirror)
Kenny Dalglish, stjóri Liverpool, neitaði að segja upp störfum þegar hann hitti eigendur félagsins en samkvæmt fréttum gekk fundur þeirra á milli ekki vel. (Daily Mirror)
Dalglish bíður nú eftir að vita framtíð sína eftir fundinn með eigendunum í Boston. (Guardian)
Dietmar Hamann, fyrrum leikmaður Liverpool, óttast að félagið komist ekki í Meistaradeildina næstu tíu árin ef að eigendurnir geri ekki róttækar breytingar í sumar. (Daily Star)
Roberto Martinez, stjóri Wigan, er efstur á óskalista WBA til að taka við af Roy Hodgson. (The Sun)
Martinez er einnig á óskalista Aston Villa en Randy Lerner eigandi Villa er kominn til Englands frá Bandaríkjunum til að finna eftirmann Alex McLeish. (Guardian)
Joey Barton er að íhuga að nota persónulega lögmann sinn Mel Stein til að reyna að koma í veg fyrir að fara í 12 leikja bann í ensku úrvalsdeildinni. (Daily Mail)
Enska úrvalsdeildin ætlar að taka upp marklínutækni á miðju næsta tímabili. (Guardian)



