Heimild: BBC
Younes Kaboul, varnarmaður Tottenham, er ekki í 26-manna hópi Frakka fyrir EM í sumar.
Kaboul meiddist gegn Fulham á sunnudag og verður ekki með á EM líkt og Bacary Sagna varnarmaður Arsenal sem fótbrotnaði á dögunum.
Mapou Yanga-Mbiwa, varnarmaður Montpellier, fagnaði 23 ára afmælisdegi sínum með því að vera valinn í hópinn í fyrsta skipti.
Franska landsliðið mætir Íslendingum í vináttuleik þann 27. maí en tveimur dögum síðar mun Laurent Blanc fækka um þrjá leikmenn í hópnum fyrir sjálft Evrópumótið.

Markverðir: Hugo Lloris (Olympique Lyon), Steve Mandanda (Olympique Marseille), Cedric Carrasso (Girondins Bordeaux).
Varnarmenn: Gael Clichy (Manchester City), Patrice Evra (Manchester United), Laurent Koscielny (Arsenal), Philippe Mexes (AC Milan), Adil Rami (Valencia), Mathieu Debuchy (Lille), Anthony Reveillere (Olympique Lyon), Mapou Yanga Mbiwa (Montpellier).
Miðjumenn: Yohan Cabaye (Newcastle United), Florent Malouda (Chelsea), Samir Nasri (Manchester City), Alou Diarra (Olympique Marseille), Yann Mvila (Stade Rennes), Yoann Gourcuff (Olympique Lyon), Marvin Martin (Sochaux), Blaise Matuidi (Paris St Germain).
Framherjar: Hatem Ben Arfa (Newcastle United), Karim Benzema (Real Madrid), Franck Ribery (Bayern Munich), Olivier Giroud (Montpellier), Jeremy Menez (Paris St Germain), Loic Remy (Olympique Marseille), Mathieu Valbuena (Olympique Marseille).