Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   mið 16. maí 2012 11:20
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Stuðningsmenn Huddersfield réðust á Alan Smith
Alan Smith, fyrrum leikmaður Manchester United og Leeds, lenti í kröppum dansi eftir 3-2 tap MK Dons gegn Huddersfield í umspili um sæti í Championship deildinni í gærkvöldi.

Stuðningsmenn Huddersfield hlupu fagnandi inn á völlinn eftir leik og nokkrir þeirra ákváðu að hlaupa beint að Smith sem er í láni hjá MK Dons frá Newcastle.

Smith fékk óblíðar móttökur hjá stuðningsmönnum Huddersfield sem réðust á hann af krafti.

Karl Robinson, stjóri MK Dons, lögreglan og öryggisverðir þurftu að grípa í taumana til að hjálpa Smith og koma honum inn í búningsklefa.

,,Það var hrækt á Alan, hann var kýldur og það var sparkað mikið í hann. Alan kom sjálfum sér til varnar. Hann sagði að þetta væru týpískar móttökur á svona stað," sagði Robinson eftir leik.
Slapp
banner