Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   mið 16. maí 2012 11:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Kagawa búinn að funda með Sir Alex Ferguson
Shinji Kagawa, leikmaður Borussia Dortmund, hefur fundað með Sir Alex Ferguson stjóra Manchester United en þessi knái Japani hefur verið sterklega orðaður við enska félagið að undanförnu.

Þessi 23 ára gamli framherij á eitt ár eftir af samningi sínum við Dortmund en viðræður um nýjan samning hafa ekki gengið vel.

,,Það var gott að ég gat hitt hann persónulega og talað við hann," sagði Kagawa eftir fundinn með Ferguson.

Ferguson sá Kagawa skora sitt 17 mark á tímabilinu í úrslitaleik þýska bikarsins um síðustu helgi en leikmaðurinn hefur einnig verið orðaður við önnur stór félög eins og Arsenal, Chelsea og AC Milan.

,,Ég vil hugsa mig lengi um áður en ég tek ákvörðun. Ég vil velja lið þar sem ég get tekist á við áskoranir," bætti Kagawa við.
Slapp
banner
banner
banner