Búið er að fresta leik KF og Þórs í bikarkeppni karla en liðin áttu að mætast á Siglufirði í kvöld.
Snjóað hefur á Norðurlandi undanfarna daga og vallaraðstæður bjóða ekki upp á að hafa leikinn í kvöld.
Snjóað hefur á Norðurlandi undanfarna daga og vallaraðstæður bjóða ekki upp á að hafa leikinn í kvöld.
Leiknum hefur því verið frestað um tæpa viku en liðin munu mætast næstkomandi þriðjudag.
Vegna vallaraðstæðna hefur leikur Magna Grenivík og KA verið færður inn í Bogann en hann fer fram klukkan 19:00 í kvöld.
Strax að þeim leik loknum mætast Dalvík/Reynir og Tindastóll í Boganum en sá leikur var einnig færður inn vegna vallaraðstæðna.



