Heimild: Sky
Umboðsmaður Yaya Toure segir að leikmaðurinn sé tilbúinn að hlusta á tilboð frá öðrum félögum í sumar.
Hinn 29 ára gamli Toure lék með Barcelona frá 2007-2010 áður en hann gekk í raðir Manchester City.
Hinn 29 ára gamli Toure lék með Barcelona frá 2007-2010 áður en hann gekk í raðir Manchester City.
Toure gæti nú verið á leið aftur til Barcelona en Chelsea, FC Bayern og Real Madrid gætu einnig komið til greina.
,,Hann hefur gert allt sem hann getur gert hjá City og þarf nýja áskorun," sagði Dimitri Seluk umboðsmaður Toure.
,;Toure gæti gengið til liðs við mörg stór félög eins og Chelsea eða FC Bayern. Við myndum líka vilja sjá Barca í baráttunni."
,,Ég hef ekki talað við Barca en þeir þekkja stöðuna. Ég veit ekki hvort Madrid hafi áhuga en Jose Mourinho hefur verið aðdáandi hans síðan hann var hjá Chelsea."

