Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   mið 16. maí 2012 12:02
Magnús Már Einarsson
Heimild: Heimasíða KSÍ 
Atli Eðvaldsson ráðinn trúnaðarmaður hjá KSÍ
Mynd: Fótbolti.net - Vilhjálmur Siggeirsson
Ákveðið hefur verið að koma á fót verkefni á vegum KSÍ þar sem trúnaðarmenn eru ráðnir til landshlutanna.

Miðar verkefnið að því að auka samskipti og samráð við þjálfara aðildarfélaga, færa þjónustu nær aðildarfélögum, meta efnilega leikmenn og fylgja eftir efnilegum leikmönnum í samráði við félögin.

Atli Eðvaldsson hefur núna verið ráðinn sem trúnaðarmaður Suð-Vesturlands.

Atli er öllum knattspyrnuáhugamönnum vel kunnur en hann hefur síðustu misseri verið í Þýskalandi þar sem hann fékk UEFA Pro þjálfararéttindi.

Áður höfðu Pétur Ólafsson verið ráðinn fyrir Norðurland og Eysteinn Húni Hauksson fyrir Austurland. Eyjólfur Sverrisson mun hafa yfirumsjón með verkefninu.
Slapp
banner
banner