Roy Hodgson, landsliðsþjálfari Englendinga, hefur tilkynnt 23-manna leikmannahóp sem fer á EM í sumar.
John Ruddy markvörður Norwich og Alex Oxlade-Chamberlain eru nýliðar í hópnum. Rio Ferdinand, varnarmaður Manchester United, er hins vegar ekki í hópnum.
Athygli vekur að Stewart Downing kantmaður Liverpool er í hópnum eftir slakt tímabil á meðan ekkert pláss er fyrir Daniel Sturridge og Adam Johnson. Michael Carrick, miðjumaður Manchester United, hlýtur heldur ekki náð fyrir augum Hodgson.
Wayne Rooney er í hópnum en missir af fyrstu tveimur leikjunum á EM vegna leikbanns. Auk hans eru framherjarnir Andy Carroll, Jermain Defoe og Danny Welbeck í hópnum. Darren Bent er ekki valinn en hann hefur verið frá keppni vegna meiðsla undanfarnar vikur.
Jack Butland (Birmingham), Phil Jagielka (Everton), Jordan Henderson (Liverpool), Adam Johnson (Manchester City) og Daniel Sturridge (Chelsea) eru síðan allir til taks ef einhver dettur út úr hópnum.
Enski landsliðshópurinn:
Markverðir: Joe Hart (Manchester City), Robert Green (West Ham), John Ruddy (Norwich)
Varnarmenn: Leighton Baines (Everton), Gary Cahill (Chelsea), Ashley Cole (Chelsea), Glen Johnson (Liverpool), Phil Jones (Manchester United), Joleon Lescott (Manchester City), John Terry (Chelsea)
Miðjumenn: Gareth Barry (Manchester City), Stewart Downing (Liverpool), Steven Gerrard (Liverpool), Frank Lampard (Chelsea), James Milner (Manchester City), Scott Parker (Tottenham), Theo Walcott (Arsenal), Ashley Young (Manchester United), Alex Oxlade-Chamberlain (Arsenal).
Framherjar: Andy Carroll (Liverpool), Jermain Defoe (Tottenham), Wayne Rooney (Manchester United), Danny Welbeck (Manchester United)
