Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   mið 16. maí 2012 18:30
Magnús Már Einarsson
Heimild: Heimasíða KSÍ 
Úlfar Hinriksson tekur við U17 ára landsliði kvenna
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Úlfar Hinriksson hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari U17 kvenna en hann tekur við starfinu af Þorláki Árnasyni.

Þjálfunarferill Úlfars spannar 18 ár en hann var m.a. aðstoðarlandsliðsþjálfari A landsliðs kvenna og þjálfaði U21 landslið kvenna 2003 – 2004.

Hann hefur undanfarið verið aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá Breiðabliki sem og þjálfari 3. flokks. Einnig hefur hann verið aðstoðarlandsliðsþjálfari U19 kvenna síðan 2010.

Þorlákur tók við liðinu í lok árs 2008 og náði frábærum árangri. Komst m.a. með liðið á síðasta ári í úrslitakeppni EM þar sem fjögur lið tóku þátt og var liðið hársbreidd frá því að komast aftur í þessa keppni í ár.
Slapp