Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 16. maí 2012 13:30
Elvar Geir Magnússon
Þórður Þórðar: Hefði kannski flautað eitt víti
Þórður í góðum félagsskap dómara.
Þórður í góðum félagsskap dómara.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þórður Þórðarson, þjálfari ÍA sem trónir á toppi Pepsi-deildarinnar, var í viðtali í Boltanum á X-inu FM 97,7 í dag. Þar var hann meðal annars spurður í vítaspyrnudóma Magnúsar Þórissonar í leik KR og ÍBV sem mikið er rætt um á kaffistofum landsins í dag.

„Sum þessi víti voru frekar "soft" eins og þeir sögðu þarna í Pepsi-mörkunum," sagði Þórður sem var spurður að því hversu mörg af þeim hann hefði dæmt?

„Ég er svo lélegur dómari en ég hefði kannski flautað eina. Það er fyrsta vítið, hitt finnst mér mjög vafasamt. Eins og vítið sem ÍBV fékk sem Hannes (Þór Halldórsson) varði frábærlega, þetta er ekkert helvítis víti. Hann (Rhys Weston) er grimmur, stekkur og hamrar boltann í burtu en hinn er eins og kjúklingur undir honum."

„Ég hefði ekki verið sátturí gær ef ég væri Rúnar (Kristinsson) að fá þetta víti á mig í restina. Mér fannst það bull. Ég var líka mjög hissa yfir því hvað Maggi (Magnús Gylfason) var rólegur eftir leikinn."

Annars finnst Þórði dómgæslan í deildinni hafa verið góð það sem af er móti.

„Maggi Þóris er flottur dómari og menn geta gert mistök í þessu eins og öllu öðru. Ég hef verið mjög ánægður með dómarana það sem af er. Við höfum tekið þann pól í hæðina á Skaganum síðustu tvö ár að vera ekkert að væla í dómurunum og það hefur gefist vel. Vonandi getum við haldið því áfram," sagði Þórður Þórðarson.

Slapp
banner
banner