Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 16. maí 2012 14:30
Daníel Freyr Jónsson
Heimild: Sky Sports 
Wilshere vill svara Nasri og vinna titla með Arsenal
Jack Wilshere.
Jack Wilshere.
Mynd: Twitter
Jack Wilshere, leikmaður Arsenal, vill svara sínum fyrrverandi samherja, Samir Nasri, af fullum krafti.

Nasri varð á dögunum Englandsmeistari með Manchester City og sagði þá að stuðningsmenn Arsenal ættu að fagna þriðja sætinu á meðan hann væri að einbeita sér að því vinna titla. 

,,Ég veit ekki hvað fer fram í hausnum á honum," sagði hinn 20 ára gamli Nasri.

,,Flott hjá honum, hann vann titilinn en á næstu árum er það markmið okkar og ég sé fram á að Arsenal muni vinna titla. Kannski talaði hann of snemma og við getum nuddað þessu í andlitið á honum á næsta ári."

Wilshere lék ekkert með Arsenal á tímabilinu vegna meiðsla, auk þess sem hann mun missa af EM í sumar. 

Hann talaði einnig um þetta síðastliðið ár sem hefur verið erfitt fyrir hann.

,,Þetta hefur verið pirrandi ár. Ég er glaður með að þetta sé búið og ég geti einbeitt mér að undirbúningstímabilinu og byrjað að nýju," hélt Wilshere áfram.

,,Ökklinn er góður núna. Ég var byrjaður að æfa fyrir lok tímabilsins og var farinn að hlakka til EM en ég átti við nokkur smámeiðsl að stríða og rann í raun út á tíma."
Slapp
banner
banner