Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   mið 16. maí 2012 17:30
Daníel Freyr Jónsson
Heimild: Sky Sports 
Luka Modric líklega á förum frá Tottenham eftir EM
Luka Modric, miðjumaður Tottenham, ætlar að skoða stöðu sína hjá liðinu eftir að EM lýkur í sumar.

Chelsea vildi kaupa Króatann síðasta sumar, en Tottenham vörðust tilboðum liðsins með kjafti og klóm.

Nú er hinsvegar sagan önnur þar sem Harry Redknapp, stjóri liðsins, hefur sagt að Modric gæti farið í sumar og sjálfur segist Modric vilja taka stærri áskorun. 

,,Ég mun ákveða mig eftir EM," sagði hinn 26 ára gamli Modric.

,,Ég mun taka ákvörðunina um hvar ég mun halda áfram ferli mínum. Ég er tilbúinn í stóra prófið," sagði Modric.

Modric er í hópi króatíska landsliðsins fyrir EM, sem fram fer í Úkraínu og Póllandi og hefst í byrjun júní. 
Slapp
banner
banner
banner