Heimild: Sky Sports
Svo gæti farið að marklínutækni væri notuð í ensku úrvalsdeildinni um mitt næsta tímabil.
Þetta sagði Richard Scudamore, framkvæmdastjóri úrvalsdeildarinnar, þegar 20 ára afmæli úrvalsdeildarinnar var fagnað í gærkvöldi.
Marklínutækni verður í fyrsta skiptið notuð á Englandi í kvöld þegar utandeildarliðin Eastleigh FC og AFC Totton mætast í Hampshire bikarnum.
FIFA mun síðan í júlí ákveða hvort marklínutækni verði leyfð um allan heim og er úrvalsdeildin spennt fyrir einni af tveimur aðferðum sem eru til, en nýafstaðaðið tímabil var ríkt af umdeildum atvikum sem marklínutæknin hefði skorið úr um.
,,Upprunalega hugmyndin var sú að hefja notkun þess í byrjun tímabilsins, en eftir að hafa hugsað þetta í gegn þá er möguleiki á að þetta verði kynnt um mitt tímabil ef allt gengur eftir," sagði Scudamore.
Mikið var rætt um að koma með marklínutækni eftir tvö mörk á skömmum tíma nú seint á tímabilinu. Fyrst var það í leik Bolton og QPR þegar að Clint Hill virtist hafa skorað fyrir QPR, en síðan var mikill efi um hvort boltinn hefði farið yfir línuna þegar Juan Mata skoraði í undanúrslitum FA Bikarsins.
,,Reglurnar eru ekki að breytast - þetta verður bara spurning um hvort boltinn fari yfir línuna eða ekki. Þegar við verðum tilbúin, þá getum við sett þetta af stað," bætti Scudamore við.
,,Staðreyndin um að við höfum betri leið til að taka eftir þessu þýðir að það er möguleiki á að koma með þetta um mitt næsta tímabil."
,,Við þurfum að ræða verðið. Þetta er viðskiptasamningur og við þurfum að komast að ágætu samkomulagi."



