Steven Gerrard, leikmaður Liverpool, verður fyrirliði Englendinga á EM í sumar.
Þetta staðfestir Roy Hogdson, stjóri enska landsliðsins, eftir að hafa opinberað hópinn fyrr í dag.
Gerrard hefur áður unnið með Hogdson, en sá síðarnefndi stýrði Liverpool um skeið tímabilið 2010-11.
Þá var Gerrard einnig fyrirliði Liverpool, en auk þess bar hann fyrirliðabandið á HM sumarið 2010.
John Terry var síðan gerður fyrirliði. Hann var eins og kunnugt er sviptur stöðunni eftir að hafa verið sakaður um kynþáttaníð í garð Anton Ferdinand.
Stuart Pearce, sem stýrði liðinu tímabundið eftir að Fabio Cappello sagði upp störfum, lét Scott Parker bera bandið á meðan hann stýrði liðinu, en Hodgson hefur nú gefið bandið á ný til hins 31 árs gamla Gerrard.



