Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 16. maí 2012 14:15
Magnús Már Einarsson
Kristinn Ingi: Var þreyttur og ákvað að láta vaða
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristinn Ingi Halldórsson, leikmaður Fram, skoraði magnað mark í 4-3 sigri liðsins á Grindavík í gær. Kristinn jafnaði 3-3 á 74. mínútu með þrumuskoti af löngu færi en boltinn fór upp í bláhornið. Kristinn er ekki þekktur fyrir sín þrumuskot og hann var sjálfur hissa á markinu.

,,Ég veit ekki hvað ég var að hugsa. Ég var búinn að hlaupa mikið fram og til baka og var smá þreyttur. Ég nennti ekki að keyra upp og ákvað að vaða," sagði Kristinn Ingi við Fótbolta.net í dag.

Papiss Cisse framherj Newcastle skoraði magnað mark með langskoti gegn Chelsea á dögunum en eftir leik sagðist hann hafa verið þreyttur og því ákveðið að láta vaða. Kristinn er stuðningsmaður Newcastle og hann gerði því svipað og Cisse í gær þó mörkin hafi verið ólík.

,,Krossarnir voru ekki búnir að ganga alveg nóg vel á undan og ég ákvað að reyna á þetta og það heppnaðist svona vel. Ég hef aldrei skotið af svona færi áður og það var virkilega sætt að ná að jafna leikinn á þessum tímapunkti."

,,Ég er ekki þekktur fyrir að skora mikið af mörkum fyrir utan teig, ég man bara eftir einu á móti Keflavík í fyrra. Ég geri þetta ekki einu sinni á æfingu og það kom öllum á óvart að þetta endaði inni. Ég held að þetta sé besta markið á ferlinum."


Framarar unnu Grindavík 4-3 í gær eftir að hafa tapað fyrstu tveimur leikjum sumarsins.

,,Þetta létti mikla pressu að ná þessum sigri. Við skoruðum að meðaltali þrjú mörk í leik á undirbúningstímabilinu en síðan skoruðum við ekki í fyrstu tveimur leikjunum. Við þurftum að svara því í gær og við náðum því í síðari hálfleik. Vonandi náum við að byggja á þessum síðari hálfleik í leiknum á móti Selfyssingum á mánudag. Þetta gerist ekki að sjálfu sér, við þurfum að hafa fyrir því eins og við kynntumst í fyrstu tveimur leikjunum," sagði Kristinn að lokum.
Slapp
banner
banner