Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 16. maí 2012 14:13
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: Sky 
Hodgson: Valdi ekki Rio út af knattspyrnuástæðum
Roy Hodgson, þjálfari enska landsliðsins, valdi í dag leikmannahópinn sem tekur þátt á Evrópumótinu í Póllandi og Úkraínu, en hann vakti gríðarlega mikla athygli.

Hodghson ákvað að skilja eftir Rio Ferdinand hjá Manchester United, en ljóst var að hann þurfti að velja á milli hans og John Terry, fyrirliða Chelsea eftir atburðinn sem átti sér stað seint á síðasta ári.

Terry átti þá að hafa verið með meint kynþáttaníð í garð Anton Ferdinand, bróðir Rio, en málið verður tekið fyrir dóm eftir Evrópumótið. Það var því ljóst að þjálfarinn vildi ekki velja báða leikmenn þar sem það hefði getað valdið usla í hópnum.

Hann valdi því Terry, en hann segir ákvörðun sína byggð á knattspyrnuástæðum, ekki mismunun á leikmönnum.

,,Ákvörðunin var algerlega byggð á knattspyrnugetu og knattspyrnuástæðum. Ég virði Rio bæði sem leikmann og persónu, en ég þekki hann ekki nógu vel persónulega." sagði Hodgson.

,,Ég hef séð það mikið af honum undanfarin ár til þess að skilja hversu góður knattspyrnumaður og persóna hann er. En ég varð að taka þessa ákvörðun af knattspyrnuástæðum og dæma út frá því sem ég hef séð undanfarna mánuði."

,,Ein ástæðan var sú að Rio hefur ekki spilað mikið með landsliðinu frá því á HM og hefur í raun bara leikið einn leik síðan þá. Ég valdi þá Phil Jones af þeim ástæðum að hann hjálpar að koma jafnvægi í hópinn þar sem Kyle Walker er frá."

,,Þannig þetta var algerlega af knattspyrnuástæðum og var erfitt að eiga þetta símtal því maður hatar að valda fólki vonbrigðum, en ég vona að Rio taki ákvörðun minni og skilji að þetta var allt byggt á þessum ástæðum,"
sagði Hodgson.

Hodgson sagðist þá hafa talað við bæði Ferdinand og Terry fyrir valið, en eins og flestum er kunnugt hefur þetta verið aðal umræðuefnið á Englandin undanfarnar vikur og þurfti Hodgson að taka mikilvæga ákvörðun.

,,Ég er búinn að tala við þá báða, því ég varð að gera það. Ég ákvað að bíða með að tala við þá þangað til eftir síðustu leikina í deildinni, því ég hefði kannski ekki þurft að tala við þá báða ef það hefðu verið einhver meiðsli eða slíkt. En síðustu daga hef ég rætt við þá báða og útskýrt fyrir þeim ástæðurnar," sagði hann að lokum.
Slapp
banner
banner