Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   mið 16. maí 2012 15:15
Fótbolti.net
Uppgjör 3. umferðar: Lars Lagerback, ertu að horfa?
Áhorfendur voru vel klæddir.
Áhorfendur voru vel klæddir.
Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson
Lars Lagerback mætti á völlinn.
Lars Lagerback mætti á völlinn.
Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson
Þessir voru ekki að mæta á völlinn í fyrsta sinn.
Þessir voru ekki að mæta á völlinn í fyrsta sinn.
Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Fótbolti.net birtir uppgjör eftir hverja umferð í Pepsi-deildinni. Þetta er allt til gamans gert. Það var kalt á leikjum 3. umferðarinnar en áhorfendur mættu vel klæddir.

Leikur umferðarinnar: Fram 4 - 3 Grindavík
Hver hefði búist við því að mesta fjörið yrði í þessum leik? Mögnuð endurkoma, glæsileg mörk, dramatík og rautt spjald. Fram lenti 3-1 undir en vann á endanum. Sigurmarkið var af dýrari gerðinni. Steven Lennon opnaði loks markareikning sinn fyrir sumarið.

Snjógalli umferðarinnar: Daníel Laxdal
Daníel tók út leikbann þegar félagar hans í Stjörnunni sóttu þrjú stig til Keflavíkur. Daníel var vel klæddur í kuldanum, var í stórglæsilegum snjógalla í stúkunni.

Klúður umferðarinnar: Gummi Steinars
Guðmundur Steinarsson leikmaður Keflavíkur fékk sannkallað dauðafæri til að jafna gegn Stjörnunni. Hann fékk að kynnast tilfinningunni að vera Palli einn í heiminum og hafði nægan tíma þegar hann komst einn gegn markverði en arfadapurt skot hans fór framhjá.

Ummæli umferðarinnar: Hjörvar Hafliðason
„Lars Lagerback, ertu að horfa?" sagði Hjörvar Hafliðason í lýsingu á Stöð 2 Sport þegar Hannes Þór Halldórsson varði vítið gegn ÍBV og tryggði KR stigin þrjú. Landsliðsþjálfarinn Lagerback var á vellinum.

Mark umferðarinnar: Kristinn Ingi Halldórsson
Kristinn Ingi mætti negla oftar á markið miðað við jöfnunarmark hans gegn Grindavík í gær. „Ég veit ekki hvað ég var að hugsa. Ég var búinn að hlaupa mikið fram og til baka og var smá þreyttur. Ég nennti ekki að keyra upp og ákvað að vaða," sagði Kristinn Ingi við Fótbolta.net í dag.

Umtal umferðarinnar: Frestanirnar
Tveimur leikjum var frestað á mánudagskvöld, annar þeirra var leikur Breiðabliks og Vals. Toppaðstæður voru samt sem áður þegar leikurinn átti að fara fram og ljóst er að ef þetta er viðmiðið verður ekki spilað meira á Skaganum í sumar.

Nýliði umferðarinnar: Snorri Páll Blöndal
Þessi ungi leikmaður kom eins og þruma úr heiðskýru lofti í byrjunarlið Stjörnunnar og spilaði með krafti og öryggi á miðjunni.

Dýfa umferðarinnar: Árni Freyr Guðnason
Féll með tilþrifum og fékk víti fyrir Fylki gegn ÍA.

Hetja umferðarinnar: Árni Snær Ólafsson
Þessi ungi markvörður kom inn sem varamaður og varði vítaspyrnuna í stöðunni 0-0. Hans fyrsti leikur í efstu deild. Skagamenn unnu svo leikinn 1-0.

Twitter-færsla umferðarinnar: Arnar Már
„Hlýt að fá frían ís með dýfu í sjoppum bæjarins á morgun. #bombaundirristeralltafgott #einmitt" - Arnar Már Guðjónsson leikmaður ÍA var sakaður um leikaraskap í Pepsi-mörkunum.

Gagnrýni umferðarinnar: Ásgeir Börkur Ásgeirsson
Ásgeir Börkur fékk að líta gula spjaldið í fyrri hálfleik fyrir að tækla Jóhannes Karl Guðjónsson og hann var ósáttur með það spjald. „Ég fékk spjald fyrir að tækla hann. Spilaði hann í alvöru á Englandi? Er það? Ég snerti hann ekki, það er bara svoleiðis."

Þjálfari umferðarinnar: Þórður Þórðarson
Varamennirnir sáu um að landa þremur stigum fyrir ÍA gegn Fylki. Enn og aftur reynast skipingar Þórðar gulls ígildi.

Dómari umferðarinnar: Rauði baróninn
Garðar Örn Hinriksson hefur verið mikið í umræðunni eins og oft áður. Dæmdi leik Fram og Grindavíkur prýðilega, lyfti einu rauðu spjaldi og sá dómur var hárréttur.

Húsvörður umferðarinnar: Selfoss
Húsvörðurinn í Tíbrá, félagsheimili Selfoss, var alveg pollslakur og leyfði blaðamaönnum að vinna eins lengi og þeir vildu þó hann væri búinn að taka til.
Slapp
banner
banner