Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool hefur sagt upp knattspyrnustjóra liðsins, Kenny Dalglish, en þetta kom fram á BBC nú rétt í þessu.
Dalglish tók við Liverpool í janúar á síðasti ári af enska stjóranum Roy Hodgson, en hann tók þá við liðinu eftir 20 ára fjarveru.
Honum gekk ágætlega undir lok síðasta tímabils, en óhætt er að segja að tímabilinu sem var að ljúka hafi verið ákveðin vonbrigði fyrir félagið. Liðið hafnaði í áttunda sæti deildarinnar, en tókst þó að komast í tvo bikarúrslitaleiki.
Liverpool vann Cardiff í úrslitum enska deildabikarsins, en tapaði hinsvegar fyrir Chelsea í úrslitum FA-bikarsins. Árangurinn í deildinni var slakur, en liðið vann einungis fjórtán leiki í deild.
Þá hefur hann verið gagnrýndur fyrir kaup á leikmönnum, en þar má nefna Charlie Adam, Jordan Henderson, Andy Carroll og Stewart Downing. Leikmennirnir kostuðu vel yfir 70 milljónir punda, en hafa ekki náð að standa undir væntingum.
Það var svo staðfest í dag að Dalglish hefur verið látinn taka poka sinn, en orðrómur undanfarna viku hefur verið uppi þar sem hann átti fund með eigendum félagsins í gær og ljóst er að ákvörðun hefur verið tekin.
Roberto Martinez, knattspyrnustjóri Wigan Athletic hefur verið sterklega orðaður við stöðuna hjá Liverpool og þá vill Fabio Capello, fyrrum þjálfari enska landsliðsins reyna fyrir sér í enska boltanum.




