Heimsmet hefur verið sett eftir að leikskrá frá 1909 var seld á tæplega fimm milljónir íslenskra króna, 23.500 pund.
Um er að ræða leikskrá fyrir úrslitaleik FA-bikarsins þar sem Manchester United og Bristol City mættust á gamla Crystal Palace leikvangnum.
Um er að ræða leikskrá fyrir úrslitaleik FA-bikarsins þar sem Manchester United og Bristol City mættust á gamla Crystal Palace leikvangnum.
Breskur safnari borgaði þessa upphæð fyrir leikskránna en umræddur leikur endaði með 1-0 sigri United fyrir framan 71.401 áhorfendur.
United klæddist hvítum treyjum með rauðu V-hálsmáli í leiknum en Sandy Turnbull skoraði eina markið.
Þetta var í fyrsta sinn sem United vann þessa elstu og virtustu bikarkeppni heims.



