Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 16. maí 2012 17:00
Jóhann Óli Eiðsson
Tvífarar: Gary Neville og...
Kæru lesendur. Í dag er miðvikudagur og í tilefni þess þá birtast tvífarar vikunnar hér á Fótbolta.net. Að þessu sinni fundust tvífarar sem báðir eru knattspyrnumenn.

Við byrjum á því að kynna þann eldri en sá heitir Gary Neville og er hættur knattspyrnuiðkun. Á ferli sínum spilaði hann eingöngu með Man Utd, 602 leiki í heildina og skoraði í þeim sjö mörk. Auk þess spilaði hann 85 landsleiki fyrir England og skoraði í þeim tvö sjálfsmörk. Neville lagði skóna á hilluna árið 2011.

Tvífari hans er Íslendingur að nafni Bjarni Þór Viðarsson. Bjarni er 24 ára og leikur með Mechelen í Belgíu en áður var hann á mála hjá Roeselare í sama landi, Twente í Hollandi og Everton á Englandi. Bjarni á að baki einn A-landsleik fyrir Ísland en töluvert fleiri fyrir unglingalandsliðin og var t.d. fyrirliði liðsins á Evrópumóti U21 sem fram fór seinasta sumar.

Ef þú hefur góða tillögu að tvíförum fyrir næsta miðvikudag, og vilt sjá nafnið þitt hér á síðunni, ekki hika við að hafa samband á [email protected] eða gauka þeim að mér á twitter (@jedisson).
Slapp
banner
banner
banner