Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
   mið 16. maí 2012 20:00
Elvar Geir Magnússon
Oxlade-Chamberlain: Hefði hlegið fyrir ári síðan
Alex Oxlade-Chamberlain.
Alex Oxlade-Chamberlain.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er algjörlega í skýjunum," segir Alex Oxlade-Chamberlain sem var valinn í landsliðshóp Englands sem fer á Evrópumótið í sumar.

Þessi ungi leikmaður Arsenal vakti mikla athygli á nýafstöðnu tímabili.

„Það er gríðarlegur heiður að vera valinn til að spila fyrir þjóð þína. Þetta er mikill heiður. Ég hefði líklega hlegið ef einhver hefði sagt mér fyrir ári síðan að ég færi með á EM 2012," segir Oxlade-Chamberlain.

„Það er súrrealískt hvað hlutirnir hafa þróast hratt. Þetta er vonandi fyrsta skrefið á löngum og gæfuríkum landsliðsferli. Ég hlakka mikið til og er frábært tækifæri fyrir mig og verður mikill skóli."

„Ég er ekki hræddur við neitt þegar ég spila, ég læt vaða gegn mönnum sama hvað þeir heita og reyni að gera gæfumuninn."

Alex Oxlade-Chamberlain hefur á tímabilinu spilað fyrir U21-landsliðið en hann skoraði þrennu gegn Íslandi á Laugardalsvelli í fyrra.
Slapp
banner
banner