Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 16. maí 2012 16:15
Elvar Geir Magnússon
Darren Bent sýnir Aston Villa tryggð
Sóknarmaðurinn Darren Bent hefur ákveðið að sýna Aston Villa tryggð sína. Þessi 28 ára leikmaður missti af síðustu þremur mánuðum tímabilsins vegna ökklameiðsla en án hans gekk Villa illa og endaði í 16. sæti.

„Ef ég á að tala í hreinskilni þá bjóst ég ekki við því að Ashley Young og Stewart Downing yrðu seldir þegar ég skrifaði undir. Ég skrifaði undir hjá Aston Villa því hér vil ég vera og sá vilji er enn til staðar," segir Bent.

„Þetta hefur ekki verið gott tímabil en við verðum að gera okkar besta í því að standa við bakið á nýja knattspyrnustjóranum sem verður ráðinn."

Alex McLeish var rekinn sem stjóri eftir eitt ár í starfi en hann náði aldrei að vinna stuðningsmenn á sitt band.
Slapp
banner
banner
banner