Heimild: Heimasíða Liverpool
Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool FC hefur gefið frá sér yfirlýsingu í kjölfar brottreksturs Kenny Dalglish frá félaginu.
Kenny Dalglish hætti sem knattspyrnustjóri Liverpool í dag eftir að hafa stýrt liðinu frá því í janúar á síðasta ári.
Liðið endaði í áttunda sæti í ensku úrvalsdeildinni þetta tímabilið og vann aðeins fjórtán leiki, en tókst þó að vinna enska deildabikarinn og komast í úrslit FA-bikarsins þar sem liðið tapaði fyrir Chelsea.
Eigendur Liverpool hafa gefið frá sér yfirlýsingu, en félagið er í eigu Fenway Sports Group, sem á meðal annars Boston Red Sox í hafnaboltanum.
Yfirlýsing Liverpool FC:
Fenway Sports Group og Liverpool FC tilkynntu í dag að Kenny Dalglish yfirgefur stöðu sem knattspyrnustjóri félagsins, en sameiginleg ákvörðun náðist að eyða samningnum hans strax.
Eftir að hafa farið ítarlega yfir árangurinn á tímabilinu, þá komst félagið að niðurstöðu að þörf væri á breytingum. Þetta var ekki auðvelt ákvörðun fyrir félagið.
Félagið hefur þegar hafið leit að nýjum knattspyrnustjóra.
John W. Henry, eigandi félagsins, segist skilja í góðu við Dalglish, en hér að neðan má sjá yfirlýsingu hans.
,,Kenny verður alltaf meira en bara maður sem vann ensku deildina sem þjálfari, eða sem leikmaður. Hann er á marga vegu bæði hjarta og sál félagsins. Hann er lifandi dæmi um það sem félagið stendur fyrir og allt sem er gott við félagið."
,,Hann hefur alltaf sett félagið og stuðningsmennina fremst í forgangsröðinni og verður hann alltaf partur af fjölskyldunni á Anfield."
,,Núna er verkefni okkar að finna og ráða réttu manneskjuna til þess að leiða liðið áfram og byggja ofan á það sem við höfum gert undanfarna átta mánuði," sagði hann að lokum.




