Heimild: Heimasíða Liverpool
Kenny Dalglish hefur stýrt Liverpool undanfarið eitt og hálft ár, en í dag yfirgaf hann liðið eftir slæmt gengi félagsins á tímabilinu.
Liverpool hafnaði í áttunda sæti deildarinnar, með einungis fjórtán sigurleiki, en liðinu tókst þó að sigra enska deildabikarinn og komast í úrslitaleik FA-bikarsins, þar sem liðið tapaði fyrir Chelsea,
Liðið hefur þá eytt tugi milljónum punda í leikmenn sem hafa ekki staðist undir væntingum, en þar má nefna Stewart Downing, Charlie Adam, Jordan Henderson og Andy Carroll sem kostuðu vel yfir sjötíu milljónir punda.
Dalglish segist stoltur yfir því að hafa getað stýrt Liverpool í annað sinn, en hann hefur unnið ensku deildina þrisvar sinnum með félaginu, FA bikarinn tvívegis og þá enska deildabikarinn einu sinni, á þessu ári.
,,Það hefur verið mér heiður og alger forréttindi að hafa átt möguleika á því að koma aftur og stýra Liverpool FC. Ég met þess mikils vinnua sem Steve, Kevin og allt þjálfaraliðið og leikmenn gerðu á tíma mínum þarna."
,,Við erum stoltir yfir því að hafa náð að skila inn fyrsta bikarnum til félagsins í sex ár og nálægt því að bæta við öðrum í FA-bikarnum.
,,Ég er að sjálfsögðu fyrir vonbrigðum með niðurstöðuna í ensku úrvalsdeildinni, en ég hefði ekki viljað skipta á sigrinum í deildabikarnum fyrir neitt annað, þar sem ég veit hvað það hafði mikla þýðingu fyrir félagið og stuðningsmennina að fá bikar eftir sex ára fjarveru."
,,Á meðan ég er augljóslega fyrir vonbrigðum með að yfirgefa félagið, þá get ég samt sagt að þetta var meðhöndlað á eins heiðarlegan hátt og virðingarlegan hátt og mögulegt var og það sýnir bara gæðin í mönnunum sem stjórna þessu og vilja ná árangri með félagið í framtíðinni, alveg frá því þeir komu hingað."
,,Ég vil þakka öllu þjálfaraliðinu fyrir þeirra framlag og traustleika. Ég hef sagt það frá því það var óskað eftir kröftum mínum að ég mun gera allt til þess að hjálpa liðinu hvenær sem er og það stendur enn."
,,Að lokum vil ég þakka stuðningsmönnum fyrir allt. Þeir hafa alltaf stutt mig og knattspyrnufélagið. Án þeirra hefði ég ekki, né félagið, afrekað neitt," sagði hann að lokum.



