Evrópumótið í Póllandi og Úkraínu hefst eftir tæpan mánuð og munum við hjá Fótbolta.net vera með reglulega upphitunarliði fyrir mótið.
Í þessum lið er farið aftur í tímann og litið á atvik sem hafa gert Evrópumótið sérstakt af hinum ýmsu ástæðum og eru fólki minnistæð.
Í þessum lið er farið aftur í tímann og litið á atvik sem hafa gert Evrópumótið sérstakt af hinum ýmsu ástæðum og eru fólki minnistæð.
Danir enduðu í öðru sæti undanriðilsins og komust því ekki á EM 1992 í Svíþjóð en mikið stríðsástand ríkti í Júgóslavíu sem varð til þess að Júgóslavía þurfti að hætta við að fara á Evrópumótið.
Danir voru í öðru sæti undanriðilsins sem Júgóslavir unnu og fengu því þátttökurétt þegar það fréttist að Júgóslavir komust ekki á lokamótið.
Þeim tókst ekki að skora í fyrstu tveimur leikjum lokamótsins en unnu svo Frakka og komust þannig í undanúrslitin þar sem þeir sigruðu ríkjandi Evrópumeistara Hollendinga í vítaspyrnukeppni.
Í úrslitaleiknum mættu þeir Þjóðverjum og lögðu þá 2-0. Þar með fögnuðu Danir sínum fyrsta og eina evrópumeistaratitli hingað til.


