Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   mið 16. maí 2012 17:39
Daníel Freyr Jónsson
Hverjir eru líklegir til að taka við Liverpool?
SkyBet búið að setja stuðla á líklega stjóra
Það eru þó nokkrir stjórar sem eru líklegir til að taka við stjórastöðunni hjá Liverpool.

Eins og kunnugt er, þá er staðan laus eftir að Kenny Dalglish lét af störfum fyrr í dag eftir lélegt gengi á tímabilinu. Liðið hafnaði í 8. sæti úrvalsdeildarinnar, en varð þó deildarmeistari og komst í úrslit FA Bikarsins.

Hérna er listinn em SkyBet hefur tekið saman og gefið stuðla á hvern og einn stjóra.

Roberto Martinez 3/1

Spánverjinn hafnaði Aston Villa síðasta sumar til að halda áfram með Wigan. Þar náði hann að stýra liðinu í öruggt sæti í deildinni eftir magnaðann lokasprett. Margir hafa hrósað honum í hástert og segja að hann eigi framtíðina fyrir sér hjá stærra liði.

Rafael Benitez 2/1

Þessi fyrrum stjóri Liverpool er búinn að vera atvinnulaus síðan hann var rekinn rá Inter Milan tímabilið 2010-11. Benitez reyndist Liverpool vel um skeið og stýrði liðinu meðal annars til sigurs í Meistaradeild Evrópu 2005, auk þess að vinna FA Bikarinn ári síðar. Tíminn einn mun þó leiða í ljós hvort af verður.

Louis van Gaal 12/1

Hann hefur áður verið orðaður við stöðuna á Anfield, en hann yfirgaf þýska stórveldið FC Bayern á síðasta tímabili og hefur átt mjög góðu gengi að fagna með félagsliðum. Hann hefur unnið Meistaradeildina með Ajax, auk þess að vinna fjölmarga titla með Barcelona, Bayern og AZ Alkmaar. Þessi sigurlaun munu eflaust vekja áhuga eiganda Liverpool.

Andre Villas-Boas 10/1

Hinn ungi Portúgali stoppaði stutt við hjá Chelsea þar sem hann hafnaði stöðugt orðróm um að ráða ekki við búningsherbergið. Hugsanlega gæti hann hafa átt skilið lengra tækifæri til að ná stjórn. Þó að orðspor hans hafi beðið hnekki eftir dvölina í London, þá gefur þrennan hans hjá Porto í fyrra enn þónokkra aðdáendur.

Paul Lambert 14/1

Lambert vakti verðskuldaða athygli í vetur og stýrði nýliðum Norwich í 12. sæti úrvaldeildarinnar á nýafstaðinni leiktíð. Hann fór til stærra liðs þegar hann kom frá Colchester árið 2009 og gæti verið, þó ólíklegur, möguleiki fyrir enn stærra félag. Það er þó talið líklegra að Lambert taki við Aston Villa og stærð Villa gæti frekar hentað honum heldur en Liverpool.

Pep Guardiola 40/1

Guardiola lét af störfum sem stjóri Barcelona nýverið til að hlaða batterýin eftir löng og ströng fjögur ár þar sem hann hefur náð einum besta árangri með félagsliði í sögunni. Þó að Spánverjinn sé aðdáandi úrvalsdeildarinnar, þá er óvíst hvort hann myndi vilja snúa aftur í boltann eftir svo stutt hlé.
Slapp
banner
banner
banner