Dani Alves, leikmaður Barcelona, viðbeinsbrotnaði í dag og mun hann því missa af úrslitaleik spænska Konungsbikarins.
Þessi brasilíski bakvörður meiddist á æfingu og er á leiðinni í aðgerð. Hann mun missa af æfingaleikjum brasilíska landsliðsins í sumar.
Þetta er talsvert áfall fyrir Barcelona, þar sem varnarmennirnir Carles Puyol og Eric Abidal verða heldur ekki með í konungsbikarnum vegna meiðsla og veikinda, en þar mætir Barcelona Athletic Bilbao.
Leikurinn fer fram þann 25. maí næstkomandi, en Alexis Sanchez er þó að snúa til baka úr meiðslum og verður leikfær.



