Heimild: Heimasíða FC Bayern
FC Bayern hefur fengið til sín markvörðinn Tom Starke frá Hoffenheim.
Gengið var frá kaupunum í dag, en hinn 31 árs gamli Þjóðverji skrifaði undir þriggja ára samning, eða til ársins 2015.
Starke hefur leikið með Hoffenheim frá árinu 2010 og spilað 36 leiki í þýsku Bundesligunni með henni.
Hann hefur áður leikið með Bayer Leverkusen, Hamburger SV og Padeborn. Lengst af lék hann þó með Duisburg, eða í þrjú ár áður en hann gekk í raðir Hoffenheim.
Þetta er annar leikmaðurinn sem Bayern fær til sín í sumar, en áður hafði brasilíski miðvörðurinn Dante komið frá Borussia Monchengladbach.



