Heimild: Sky Sports
Joey Barton, fyrirliði QPR, hefur tekið einni ákærru af tveimur eftir ofbeldisfulla framferð í leik liðsins gegn Manchester City um helgina.
Barton var rekinn af velli í leiknum eftir að hafa farið með höndina í andlit Carlos Tevez.
Hann sparkaði síðan í Sergio Aguero og lenti saman við Vincent Kompany áður en hann gekk af velli.
Þar sem Barton var þegar kominn með rautt spjald var það ekki verk dómarans að dæma fyrir brotin á Aguero og Kompany og var hann því ákærður af enska knattsyprnusambandinu.
Barton hefur nú tekið ákærunni fyrir ofbeldisfullt framferði gagnvart Aguero, en hafnar kærunni vegna Kompany.
Hann bað síðan um samtal við sambandið vegna atvikana og mun það fara fram síðar.



