Heimild: Sky Sports
Englendingarnir Rio Ferdinand og Micah Richards, varnarmenn Manchesterliðana United og City, fara ekki leynt með vonbrigði sín eftir að hafa verið skildir eftir fyrir EM í sumar.
Hvorugir leikmannana komst í lokahópi enska landsliðsins hjá Roy Hogson sem opinberaður var í morgun.
,,Gjörsamlega elska að spila fyrir England.. Að segja að ég leiður er vægt til orða tekið," skrifaði Ferdinand á Twitter síðu sinni í dag.
Ferdinand á að baki 81 landsleik, en hann er orðinn 33 ára og er því líklegt að hann hafi spilað á sínu síðasta stórmóti með Englandi. Hann lék síðast með landsliðinu um mitt síðasta sumar.
Richards gat einnig ekki leynt vonbrigðum sínum í viðtali við heimasíðu Manchester City.
,,Auðvitað voru fyrstu viðbrögð mín svekkelsi, en þjálfarinn velur hópinn og hann getur ekki valið alla," sagði Richards, en Glen Jonhson mun líklega spila í stöðu hægri bakvarðar í stað hans.
,,Enginn mun hvetja England hærra en ég þegar EM byrjar. Margir félagar mínir frá City og öðrum félögum munu spila þarna og ég vill að þjóð mín vinni."
Richards varð á dögunum Englandsmeistari með City og ætlar hann sér að vinna sæti sitt í enska landsliðinu að nýju með því að standa sig með félagsliði sínu.
,,Það er svo margt til að horfa fram á með tilhlökkun. Við ætlum að verja Englandsmeistaratitilinn og vera samkeppnishæfir í Meistaradeild Evrópu."
,,Vonandi mun ég spila slatta af leikjum og vera valinn í enska landsliðið einhverntímann í framtíðinni," sagði Richards að lokum.



