Það var nóg um að vera í norska boltanum í dag, en fjölmargir Íslendingar spiluðu bæði í efstu og fyrstu deild.
Björn Bergmann Sigurðarson var atkvæðamikill í liði Lilleström sem lagði Indriða Sigurðsson og félaga að velli með tveimur mörkum gegn einu. Björn skoraði bæði mörk Lilleström.
Björn Bergmann spilaði allan leikinn í framlínunni hjá liðinu og Pálmi Rafn allan leikinn á vinstri kanti, en Stefán Logi Magnússon þurfti að sætta sig við tréverkið í dag. Indriði lék fyrstu sextíu mínútur leiksins.
Lilleström er í fjórtánda sæti deildarinnar með sjö tig sem stendur, en Viking í ellefta með 11 stig.
Kristján Örn Sigurðsson og Arnór Sveinn Aðalsteinsson léku þá allan leikinn er Hönefoss vann Rosenborg með einu marki gegn engu. Andrés Már Jóhannesson var ekki með Haugesund í dag sem vann Aalesund 4-2.
Hönefoss er í áttuna sætinu með 13 stig, en Haugesund í því fjórða með með sextán stig.
Haraldur Björnsson vermdi tréverkið er Sarpsborg 08 vann Mjondalen með þremur mörkum gegn einu. Þá voru félagarnir tveir hjá Start, þeir Guðmundur Kristjánsson og Matthías Vilhjálmsson atkvæðamiklir hjá liðinu.
Start rústaði Notodden með sjö mörkum gegn engu, en Guðmundur lagði upp tvö mörk í leiknum og þá skoraði Matthías Vilhjálmsson eitt sjálfur. Þeir hafa verið gríðarlega góðir frá því þeir komu til félagsins, en líklegt er að þeir verðir keyptir á næstunni, þar sem þeir eru á láni frá Breiðablik og FH
Start er í efsta sæti deildarinnar sem stendur með fimmtán stig, en Haraldur og félagar í Sarpsborg 08 eru hinsvegar í fjórða sætinu með 14 stig.




