Nokkrir Íslendingar voru í eldlínunni í efstu deild í Svíþjóð í dag, en einn þeirra skoraði í jafntefli.
Alfreð Finnbogason skoraði eina mark Helsingborg sem gerði 1-1 jafntefli við Kalmar FF í dag á útivelli. Markið var af dýrari gerðinni en hann fékk þá boltann inn fyrir og slapp einn í gegn áður en hann vippaði boltanum yfir markvörðinn og inn.
Helgi Valur Daníelsson og Eiður Aron Sigurbjörnsson voru hvergi sjáanlegir er AIK og Örebro gerðu 2-2 jafntefli, en báðir eru frá vegna meiðsla.
Þá töpuðu Gunnar Heiðar Þorvaldsson og félagar í Norrköping stórt fyrir Hacken, eða 6-0, en Gunnar lék allan leikinn.



