Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   mið 16. maí 2012 19:35
Brynjar Ingi Erluson
Myndband: Alfreð skoraði laglegt mark gegn Kalmar
Alfreð Finnbogason
Alfreð Finnbogason
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Alfreð Finnbogason, framherji Helsingborg í Svíþjóð skoraði ansi laglegt mark er lið hans gerði 1-1 jafntefli gegn Kalmar FF í sænsku úrvalsdeildinni í dag.

Alfreð var þarna að skora sitt fimmta mark í deildinni til þessa, en hann slapp einn í gegn eftir stungusendingu frá Jere Uronen. Hann komst þá einn í gegn á móti markverði og vippaði laglega yfir hann og inn í markið.

Kalmar jafnaði þó metin þegar um tíu mínútur voru eftir af leiknum, en þar var að verki Jonathan McDonald. Hægt er að sjá mark Alfreðs hér að neðan.

M%C3%A5l:%20Helsingborgs%201-0%20p%C3%A5%20l%C3%A4cker%20lobb
Slapp
banner
banner