Heimild: Sky
Patrice Evra, leikmaður Manchester United á Englandi, hefur lýst undanförnu ári sem því erfiðasta sem hann hefur upplifað.
Manchester United missti af verðlunagripum þetta árið, en liðið var nálægt því að landa titlinum þegar nokkrar mínútur voru eftir af síðustu umferð ensku deildarinnar, en tókst þó ekki.
Liðinu gekk ekki vel í öðrum keppnum, en liðið datt úr leik í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu og í kjölfarið útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar. Liðið féll þá úr leik bæði í FA-bikar og deildabikar.
Það var þó ekki það allra erfiðasta fyrir Evra, en eins og flestum er kunnugt þá var Luis Suarez, leikmaður Liverpool með kynþáttaníð í hans garð í fyrri viðureign liðanna á tímabilinu og þá var úrúgvæski framherjinn ný kominn úr banninu fyrir atvikið er þeir mættust aftur.
Evra missti þá bróðir sinn, en hann segir þetta ár það erfiðasta í lífi hans. Hann viðurkenndi þá að hann hafi verið svo reiður í byrjun leiks gegn Liverpool að hann hefði auðveldlega getað fengið að líta rauða spjaldið.
,,Allt við þetta var svo erfitt. Fólk hélt að ástæðan fyrir því að ég fagnaði í lok leiks gegn Liverpool var út af því að Suarez var með kynþáttaníð gegn mér, en það var meira en bara það," sagði Evra.
,,Ég vildi þakka liðsfélögum mínum. Ég veit að allir hjá Manchester United eru að spila til þess að vinna fyrir félagið, en þetta var svolítið fyrir mig líka. Þessi leikur er mesta pressa sem ég hef upplifað á ævi minn og allt út af einhverju handabandi."
,,Það var mjög erfitt að ákveða hvað maður ætti að gera fyrir leikinn. Það eru margir sem myndu neita að taka í hendur fyrir svona atburði, en ég reyndi það og hann hafnaði því."
,,Þá hugsaði ég bara hvað er í gangi, en þið sjáið fyrstu tæklinguna þegar ég lendi á Rio Ferdinand? Ef þetta hefði verið Suarez þá hefði ég fengið að líta beint rautt og væri farinn af vellinum," sagði hann ennfremur.
Það hafa þó fleiri hlutir verið að angra Evra á þessu ári, en hann missti 42 ára gamlan bróðir sinn, rétt fyrir leik liðsins gegn Manchester City í október.
,,Fyrir leikinn gegn Manchester City í október þá hringdi pabbi minn í mig og sagði mér að bróðir minn væri látinn. Það er ekki hægt að heyra verri hluti fyrir svona leik og það bættist bara ofan á Suarez-málið."
,,Ég er mjög stoltur af sjálfum mér, þar sem ég er núna sterkari andlega en áður fyrr og að halda áfram að spila hvern einasta leik er bara frábær. Ég veit að svona á leikmaður Manchester United ekki að tala þegar liðið vann ekki deildina og þetta virðist sem einhver afsökun, en þetta er sannleikurinn."
,,Ég vil ekki ljúga að fólki. Þetta ár hefur reynst mér afar erfitt," sagði hann að lokum.


