Heimild: FIFA
Carlos Tevez, framherji Manchester City á Englandi, virðist ekki ætla að biðja Sir Alex Ferguson, stjóra nágranna þeirra í Manchester United afsökunar á skiltinu sem hann bauð upp á í skrúðgöngu City á dögunum.
Tevez hélt á lofti skilti sem stóð á ,,RIP Fergie" er leikmenn og þjálfaralið Manchester City keyrði um götur borgarinnar eftir að hafa unnið ensku úrvalsdeildina, en fögnuðurinn fór fram á mánudag.
Mikið fjaðrafok átti sér stað bæði á samskiptavef Twitter sem og í bresku blöðunum, en Man City bað Man Utd afsökunar á framferðinu og hefur sú afsökunarbeiðni verið tekin gild, en leikmaðurinn sjálfur neitar þó að gera slíkt hið sama.
,,Það er eins og Ferguson sé forseti Englands. Í hvert skipti sem hann kemur í blöðin og talar illa um leikmenn eða bullar um mig, þá biður enginn hann um að biðjast afsökunar," sagði Tevez.
,,Þegar þú segir brandara þá biður maður afsökunar, en ég ætla ekki að gera það," sagði hann að lokum.

