Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
   mið 16. maí 2012 20:34
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: ESPN 
Liverpool ekki búið að gera lista yfir mögulega stjóra
Ian Ayre, framkvæmdarstjóri Liverpool á Englandi, segir að eigendur liðsins séu ekki búnir að gera lista yfir þá knattspyrnustjóra sem félagið ætlar að leita til og á að taka við keflinu af Kenny Dalglish, sem var látinn taka poka sinn í dag.

Kenny Dalglish var látinn taka poka sinn í dag eftir að hafa stýrt liðinu undanfarið eitt og hálft ár, en hann var þarna að stýra liðinu í annað sinn á ferli sínum. Það er þegar hafin leit að nýjum stjóra, en Ayre segir að ekki sé kominn listi yfir mögulega arftaka Dalglish.

Roberto Martinez, stjóri Wigan Athletic, hefur verið sterklega orðaður við félagið, en Ayre blæs á allar sögusagnir.

,,Ekki í augnablikinu, nei. Við mætum til vinnu á morgun og hefjum leit að næsta stjóra, þá hefst þetta allt saman," sagði Ayre.

,,Úrslitin, kannski, eru ástæðan fyrir þessari ákvörðun, en við erum ekki á töflunni þar sem við hefðum viljað vera. Okkar fannst þetta vera rétt ákvörðun og eitthvað sem við verðum að fylgja eftir, en hann fær samt mikið lof fyrir starf í þágu félagsins."

,,Við erum með stór framtíðarplön fyrir þetta knattspyrnufélag og höfum talað um að ná árangri og taka skrefin í rétta átt. Við höfum náð miklum framförum og árangri fyrir utan völlinn og skapað góðan grunn fyrir viðskiptin og innkomu og það næsta er að árangurinn á vellinum verði betri,"
sagði hann að lokum.

Hann var síðan spurður út í það hvort hann væri næsti stjórnarmeðlimurinn sem væri á leið út, en hann neitaði því alfarið. Mikil hreinsun hefur farið fram innan herbúða liðsins og ljóst er að allt verður skapað frá grunni.
Slapp
banner
banner
banner