Eiður Smári Guðjohnsen, leikmaður AEK Aþenu lagði upp mark í 2-0 sigri liðsins á PAOK í sumspili grísku úrvalsdeildarinnar.
Eiður Smári kom inn á sem varamaður þegar um tuttugu mínútur voru eftir af leiknum, en honum tókst að leggja upp síðara mark leiksins.
Hann er því að verða kominn í sitt gamla form, en hann hafði verið frá vegna fótbrots sem átti sér stað seint á síðasta ári.
AEK Aþena leikur núna til úrslita um sæti í Meistaradeild Evrópu, en mótherjar þeirra verða Panathinaikos og leika liðin á sunnudag.




