Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
banner
   fös 18. maí 2012 13:01
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: Daily Mail 
Thomas Ince: Pabbi var góður en mig langaði að vera Giggs
Thomas Ince, leikmaður Blackpool í ensku fyrstu deildinni hefur verið frábær á tímabilinu með liðinu sem leikur við West Ham United á morgun um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni.

Ince, sem er 20 ára gamall var á mála hjá Liverpool áður en hann gekk til liðs við Blackpool síðasta sumar, en honum tókst einungis að leika einn leik fyrir aðallið Liverpool. Honum hefur þó tekist að blómstra með Blackpool frá komu sinni.

Hann hefur leikið 38 leiki á tímabilinu og skoraði sjö mörk, en liðið leikur við West Ham á morgun um síðasta lausa sætið í ensku úrvalsdeildinni á Wembley.

Eins og mörgum er kunnugt þá er faðir hans, Paul Ince, sem lék meðal annars með Liverpool og Manchester United, en hann viðurkennir að þegar hann var yngri þá hélt hann meira upp á Ryan Giggs í liði Man Utd.

,,Pabbi var meira svona sterkur miðjumaður, en mér finnst skemmtilegra að fara framhjá leikmönnum á meðan honum fannst skemmtilegra að taka boltann af þeim. Mín hetja hefur alltaf verið Ryan Giggs og það er furðulegt að hugsa út í það að hann var hjá okkur fyrstu sex mánuðina er hann byrjaði hjá Manchester United," sagði Ince.

,,Ég var mjög ungur, en við spörkuðum á milli okkar í garðinum og ég velti því oft fyrir mér hvort það hafði áhrif á hvernig leikmaður ég er í dag. Ég hélt alltaf meira upp á vinstri fótinn og spilaði alltaf stöðu sem vængmaður eða vinstra megin á vellinum hvort sem það var í skólanum eða með liði."

,,Eins og allir aðrir krakkar þá þóttumst við alltaf vera hetjan okkar í fótbolta og ég sagðist alltaf vera Ryan Giggs. Þá horfðu allir krakkarnir á mig og sögðu ,,Hvað með pabba þinn? Þú verður að vera Incey!"."

,,Ég sagði alltaf bara ,,Nei, ég er Giggsy!" og svo skildu krakkarnir af hverju þegar ég var alltaf með boltann á vinstri fætinum,"
sagði hann að lokum.
Slapp
banner